Þátttaka barna

Rannsóknir, þar sem þátttöku barna er krafist, eru bundnar ákveðnum skilyrðum.  Þetta er í samræmi við alþjóðlegar siðareglur á sviði læknavísinda, enda er almennt talið rétt a born njóti sérstakrar verndar og friðhelgi. 

 

Eftirfarandi skilyrði eru ávallt höfð að leiðarljósi þegar metnar eru umsóknir um rannsóknarverkefni með þátttöku barna:

  1. Rannsóknina er ekki unnt að framkvæma á fullorðnum, lögráða einstaklingum með sama vísindalega árangrinum.
  2. Meginreglan er sú, að þátttaka barnsins í rannsókninni komi heilsu þess til góða með beinum hætti.  Þó má gera undantekningar frá þessu, að uppfylltu skilyrði eitt hér að ofan, en auk þess þarf að mega gera ráð fyrir að niðurstöður úr rannsókninni geti á endanum leitt til ávinnings fyrir einstaklinginn sem um ræðir, eða aðra einstaklinga í sama aldurshópi eða þeirra sem haldnir eru sama sjúkdómi eða heilsufarsröskun og þátttakandinn. Jafnframt skal rannsóknin hafa lágmarksáhættu eða áþján í för með sér fyrir barnið sem um ræðir.
  3. Afla skal upplýsts samþykkis foreldris eða forráðamanns barnsins.  Eftir því sem þroski barnsins gefur tilefni til skal einnig afla samþykkis þess, en ekki má þó krefjast þátttöku barnsins, hreyfi það mótbárum.
  4. Bæði foreldrar/forráðamenn og barnið sjálft skulu fá upplýsingar um fyrirhugaða rannsókn í samræmi við almennar reglur þar um.  Upplýsingarnar til barnsins skulu vera settar fram með hliðsjón af þroska þess og málskilningi.
  5. Sé um að ræða meðferðarrannsókn skal inngripið sem til rannsóknar er líklegt til að vera jafngagnlegt og önnur meðferð sem í boði er.

 

Ofangreindar viðmiðunarreglur eru settar með hliðsjón af eftirfarandi ákvæðum í alþjóðlegum samningum og ráðleggingum á sviði lífsiðfræði: Samantekt