Fundir VSN

Vísindasiðanefnd fundar að jafnaði tvisvar í mánuði.

Nýjar umsóknir þurfa að berast skrifstofu í síðasta lagi tíu dögum fyrir fundardag til að tryggja að þær komist á dagskrá fundar.  Vegna anna áskilur nefndin sér allt að sex vikum til að fjalla um nýjar almennar umsóknir, og umfjöllun um klínískar lyfjarannnsóknir getur tekið lengri tíma. Fjöldi  og röð innkominna erinda ræður því hvenær þau komast á dagskrá á fundum nefndarinnar.

 

Svör, tilkynningar og önnur erindi þurfa að berast skrifstofu fyrir kl. 14 á miðvikudegi fyrir fund. Berist gögn eftir þann tíma verður ekki unnt að taka umsókn til afgreiðslu á næsta fundi. 

 

Fullgerðar umsóknir berist skrifstofu nefndarinnar í fimm eintökum. Það eru vinsamleg tilmæli að bæði umsókn og fylgiskjöl berist skrifstofu einnig með tölvupósti til að flýta fyrir afgreiðslu. Einnig er þess óskað að svör við athugasemdum nefndarinnar berist í þremur eintökum til skrifstofunnar og berist einnig með tölvupósti.

 

 Að loknu sumarhléi 2010 fundar Vísindasiðanefnd eftirfarandi þriðjudaga:

31. ágúst, 14. og 28. september, 12. og 26. október, 9. og 23. nóvember og 7. og 14. desember

 

.

Nemendaverkefni

Umsóknir vegna verkefna nemenda þurfa að berast nefndinni í síðasta lagi 4. nóvember 2010 til þess að unnt verði að afgreiða þær á árinu. Minnt er á gátlista um nemendaverkefni annars staðar á heimasíðunni.